Smyrill var einstaklega gæfur hrútur, hann gerði ekki mannamun og var rólegur og góður í húsum. Strax sem lambið var hann mjög forvitinn og reyndi að ná sambandi við alla sem um garðann gengu.
Hann reyndist ágætlega sem kynbótahrútur og voru settar á undan honum 30 ær sem hafa reynst ágætlega. Hann náði nokkuð háum aldri af hrúti að vera, varð 5 vetra. Þá var hann fullnotaður vegna framfara í kynbótum í hjörðinni. Það er að segja; yngri hrútarnir voru farnir að skila betri lömbum.
Smyrill var einstaklega vel hyrndur. Þó þótti stefna í að hann yrði of krapphyrndur lambið, var þá settur vír milli horna hans nærri hausnum sem beindi veksti hornanna frá kjálkunum. Eftir það uxu hornin í glæsilegum sveigjum og það er engin tilviljun að eftirmynd Smyrils er stimpluð á margar tegundir hefðbundnum sápanna hjá Sælusápum