Fori 02-116
frá Lóni í Kelduhverfi
Fori var hreinræktaður forystuhrútur, heimaræktaður, undan Foru 95-512 frá Víkingavatni. Lengst aftur var hægt að rekja ættir hennar til Foru
sem fædd var 1944 í Grasgeira á Hólaheiði. Faðir hans var Biskup 96-822, ættaður úr Þistilfirði. Sjá meira um forystufé á heimasíðu Fræðaseturs um forystufé.