Haustið 2008 vantaði nýjan forystuhrút í Lón til að halda við forystufjárstofninum. Markmiðið er að hafa 4-6 forystuær á öllum aldri í húsunum á hverjum tíma til að tryggja stofninn fyrir áföllum.
Ræktun Gríms í Klifshaga í Öxarfirði er margfræg og leituðum við því fanga hjá honum. Hann lét okkur hafa ljómandi fallegan móblessóttan, sokkóttan lambhrút.
Hann var skapgóður og þægilegur í húsi, þótt hann yrði aldrei gæfur. Hann var háfættur og glæsilegur á velli, vel hyrndur og fallega mórauður. Sú mýksta ull sem við höfum komist í var af honum. Hvort það er tengt litnum, eða að forystufé hafi mýkri ull en venjulegar kindur vitum við ekki, en það væri verðugt rannsóknarefni. Við héldum eftir af honum einu reyfi sem við notum til að fóðra sápukassana með Móblesa-sápunni.
Við héldum honum í þrjú ár, en að þeim tíma liðnum vorum við búin að endurnýja stofninn og flestar forystukindurnar orðnar undan honum. Honum var því lógað haustið 2011 því hrútar sem ekki eru notaðir verða sérlega skapstyggir og einnig teljum við það illa meðferð að gelda svo fullorðna hrúta - og búa til með því forystusauði.
Í húsunum í dag eru þrjár ær undan Móblesa: Dimma, Gola og Roka.